AutoViewer requires JavaScript and the Flash Player. Get Flash here.

Velkomin á heimasíðu ICEGLASS

Að baki glerblástursverkstæði Iceglass standa glerlistamennirnir og mæðginin Lárus G og Gulla.

Iceglass glerblástur er staðsett við smábátahöfn Keflavíkur að Grófinni 2 og er fyrsta opna glerblástursverkstæði landsins, þar sem gestir og gangandi geta fylgst með hvernig hið 1100 gráðu heita gler er formað og blásið.

Auk glerlistar má á verkstæðinu njóta skartgripa, keramiklistar og myndlistar, en verkstæðið kynnir nýja myndlistarmenn með reglulegu millibili.

Glerið er þó að sjálfsögðu þungamiðjan og á verkstæðinu gefur að líta mikið úrval einstakra listmuna auk glerlistar til almennra nota.
Allir eru velkomnir að kíkja við og fylgjast með þessari heillandi listgrein í opnunartíma verkstæðisins.